Nokkrir félagar úr Taflfélagi Vestmannaeyja. Mynd: Heimasíða TV

Skákþing Vestmannaeyja 2019 hófst 24. janúar sl. og fer fram í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9 Vm. 

Keppendur eru átta  –   og verður tefld einföld umferð.  Teflt verður á fimmtudögum kl. 20.00 og  sunnudögum kl. 13.00 frestaðar skákir eða umferðir eftir atvikum. Umhugsunartími er 60 mín. + 30 sek á leik.

Mótinu lýkur   28. febrúar 2019, tímalega   fyrir Íslandsmót skákfélaga 2018-2019 sem verður haldið 1.-2. mars nk.  en TV er með sveitir í 3ju og 4. deild. 

Staðan eftir  sex  umferðir – fyirr síðustu umferð:

 1.-2. Stefán Gíslason og  Hallgrímur Steinsson með 4,5 vinn. 3.-4. Sigurjón Þorkelsson  og Arnar Sigurmundsson með 4 vinninga. 

Mótstafla á Chess-Results.

- Auglýsing -