Skákþing Vestmannaeyja 2019 hófst 24. janúar sl. og fer fram í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9 Vm.
Keppendur eru átta – og verður tefld einföld umferð. Teflt verður á fimmtudögum kl. 20.00 og sunnudögum kl. 13.00 frestaðar skákir eða umferðir eftir atvikum. Umhugsunartími er 60 mín. + 30 sek á leik.
Mótinu lýkur 28. febrúar 2019, tímalega fyrir Íslandsmót skákfélaga 2018-2019 sem verður haldið 1.-2. mars nk. en TV er með sveitir í 3ju og 4. deild.
Staðan eftir sex umferðir – fyirr síðustu umferð:
1.-2. Stefán Gíslason og Hallgrímur Steinsson með 4,5 vinn. 3.-4. Sigurjón Þorkelsson og Arnar Sigurmundsson með 4 vinninga.
Mótstafla á Chess-Results.
- Auglýsing -















