Don, Kjartan og Björgvin hrepptu verðlaunin í Hraðskákmóti öðlinga. Mynd: Heimasíða TR.

Það voru svo sannarlega engin venjuleg brögð í tafli þegar formaður Taflfélags Reykjavíkur, Kjartan Maack, kom við í höll sinni og lagði mann og annan á skákborðunum í Hraðskákmóti öðlinga sem þar fór fram. Kjartan hlaut 10 vinninga í skákunum ellefu en það var við hæfi að sá eini sem náði að snúa á Kjartan var nýbakaður Skákmeistari öðlinga, Haraldur Haraldsson. Eftir þann ósigur rann einhverskonar æði á formanninn sem vélaði niður hvern andstæðinginn á fætur öðrum þar sem hann færði mennina örugglega eftir borðunum köflóttu og studdi þess á milli þéttingsfast á skákklukkurnar. Aðeins hálfum vinningi á eftir Kjartani kom hinn eitilharði Björgvin Víglundsson og þriðji með 8 vinninga var sjálfur Don Roberto Lagerman sem virtist nokkuð eftir sig að lokinni baráttu við grjótharða Valsmenn að Hlíðarenda fyrr um daginn.

Gull- og silfurhafarnir á Skákmóti öðlinga, nafnarnir Haraldur Baldursson og Haraldsson. Ef vel er að gáð sést að Jóhann Ingvason vantar á myndina en hann hlaut bronsið. Mynd: Heimasíða TR.

Ásamt verðlaunaafhendingu fyrir hraðskákmótið voru veitt verðlaun fyrir Skákmót öðlinga sem lauk á dögunum en þar sigraði eins og fyrr segir Haraldur Haraldsson en jafnir í 2.-3. sæti voru Haraldur Baldursson og Jóhann Ingvason.

Af heimasíðu TR

- Auglýsing -