Þrír efstu menn á undanríasum Víkingsklúbbsins. Mynd: IEB

Undanrásir Reykjavik Open Barna-Blitz eru í fullum gangi þessa vikuna. Huginn og Víkingaklúbburinn hafa haldið sínar undanrásir. Undanrásir Fjölnis eru í dag fimmtudag og Blikar halda sínar á morgun föstudag.

Taflfélag Reykjavíkur heldur sínar undanrásir sem hluta af Páskaeggjamóti sínu þann 12. apríl.

Í ljósi ágætis þátttöku stelpna í undanrásunum verða sérstakar undanrásir fyrir stelpur haldnar næsta sunnudag klukkan 14:00 í Hörpu. Tvö sæti verða í boði. Þegar hefur Soffía Arndís Berndsen nælt sér í sæti eftir góðan árangur í undanrásum hjá Víkingaklúbbnum og því ljóst að allavega verða 3 stelpur í úrslitunum.

 

- Auglýsing -