Reykjavíkurskákmótið 2019 fer fram í Hörpu dagana 8.-16. apríl næstkomandi. Mótið verður að þessu sinni tileinkað minningu Stefáns Kristjánssonar stórmeistara, sem lést langt fyrir aldur fram í fyrra.

Stefán Krisjánsson að tafli á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu.

Sérstakur heiðursgestur mótsins er nýr forseti FIDE, hinn rússneski Arkady Dvorkovich. Sá var um tíma aðstoðarforsætisráðherra Rússlands og var formaður undirbúningsnefndar um HM í fótbolta í Rússlandi í fyrra.

Arkady Dvorkovich mætir á GAMMA Reykjavíkurskákmótið.

Um 250 manns frá 40 löndum eru skráðir til leiks á mótið og þar af eru 33 stórmeistarar. Fjórir íslenskir stórmeistarar taka þátt. Það eru Hjörvar Steinn Grétarsson, stigahæsti skákmaður landsins,

Hjörvar Steinn Grétarsson að tafli á Ólympíuskákmótinu í Tromsö 2014

Hannes Hlífar Stefánsson, sigursælasti keppandinn í sögu í Reykjavíkurskákmótanna, Jóhann Hjartarson, sem hefur náð lengst allra íslenskra skákmanna á heimsvísu ásamt Friðriki Ólafssyni og nýjasti stórmeistari okkar Íslendinga Bragi Þorfinnsson. Stórmeistari kvenna, Lenka Ptácníková, fer fremst í heimavarnarliði íslenskra skákkvenna.

Hannes Hlífar Stefánsson að tafl í Reykjavíkurskákmótinu 2017. Mynd: Ómar Óskarsson.

Stigahæstur keppenda er enski stórmeistarinn Gawain Jones. Næststigahæstur keppenda er hinn sænski Nils Grandelius.

Nils Grandelius er ávallt mikll aufúsgestur hérlendis.

Í 3.-4. sæti á stigalista mótsins eru Íranarnir Parham Maghsoodloo, heimsmeistari 20 ára og yngri og Alireza Firouzja. Menn skula leggja þessi nöfn á minnið en sá síðarnefndi, sem er aðeins 16 ára, er framtíðarheimsmeistaraefni að mati Íslandsvinarins Ivans Sokolovs.

Íranir tveir mun án efa blanda sér í toppbaráttuna.

Indverska undrabarnið Dommaraju Gukesh teflir í fyrsta skipti á Reykjavíkurskákmóti. Í janúar síðastliðnum varð hann næstyngsti stórmeistari sögunnar, 12 ára, 7 mánaða og 17 daga. Aðeins Sergey Karjakin varð stórmeistari yngri.

Tania Sadchev

Margar eftirtektar skákkonur taka þátt. Þeirra kunnust hérlendis er án efa hin indverska Tanja Sachdev sem sló eftirminnilega í gegn árið 2016.  Rétt er að vekja athygli á þátttöku Dinara Saduakassova frá Kasakstan og Rameshbabu Vaisili frá Indlandi. Báðar eru þær margfaldir heimsmeistarar í yngri flokkum. Margar ungar og íslenskar setja svip sinn á mótið.

Dinara Saduakassova

Mótið er afar mikilvægt fyrir íslenskt skáklíf og hefur verið flaggskip þess síðan framsýnir menn héldu fyrsta Reykjavíkurskákmótið í Lídó árið 1964. Mótið er afar vinsælt og hátt skrifað úti í hinum stóra heimi og hefur síðustu ár lent í 2.-4. sæti yfir besta opna skákmót heims í vali atvinnuskákmanna.

Veislan hefst á mánudaginn kl. 15. Bæði forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra verða viðstödd setningu mótsins.

Enn er opið fyrir skráningu í mótið.

Heimasíða mótsins.

- Auglýsing -