Caruana óskar Carlsen til hamingju Mynd: Maria Emelianova/Chess.com

Heimsmeistarinn, Magnús Carlsen (2845), er í stórkostlegu formi þessa dagana. Hann hreinlega ruslaði upp GRENKE-mótinu sem lauk í gær í Baden Baden í Þýskalandi. Heimsmeistarinn hlaut 7½ vinning í 9 umferðum og varð 1½ vinningi fyrir ofan Fabiano Caruana (2828) sem varð annar.

Lokastaðan

Fjórði sigur Magnúsar á stórmóti í röð. Hann verður með 2875 á næsta stigalista. Verður 56 stigum fyrir ofan Caruana þar. Aðeins fimm skákmenn í heiminum eru innan við 100 stigum á eftir Carlsen. Magnús hefur hæst náð 2889 skákstigum en það gerði hann í apríl 2014.

Næsta verkefni Magnúsar verður at- og hraðskákmót á Fílabreinströndinni 6.-13. maí. Sjá nánar hér.

Sjá nánar á Chess.com.

- Auglýsing -