Meistaramót Skákskóla Íslands fyrir starfsárið 2018/2019 fer fram dagana 18.–19. maí og verður í tveim styrkleika/stigaflokkum. Annar flokkurinn verður skipaður keppendum sem hafa 1600 alþjóðleg elo-stig eða meira en hinn flokkurinn er skipaður keppendum sem er undir 1600 elo stigum eða stigalausir.
- Frestur til að tilkynna þátttöku rennur út kl. 20 í kvöld, 17. maí.
- Gerðar verða ráðstafanir varðandi dagskrá v /Eurovision.
Að þessu sinni er mótið í stigahærri flokknum haldið með öðru sniði en undanfarin ár en úrslitin þar eru einungis reiknuð til at-skákstiga. Í flokki keppenda undir 1600 elo stigum eru skákirnar reiknaðar til alþjóðlegra elo stiga.
Keppnisdagar er tveir, 18. maí og 19. maí.
Í efri styrkleikaflokknum en er teflt um sæmdarheitið Meistari Skákskóla Íslands. Núverandi meistari Skákskólans er Hilmir Freyr Heimisson.
Þátttökurétt hafa nemendur skólans og allir þeir sem tekið hafa þátt í námskeiðum á vegum skólans eða hlotið þjálfun á vegum skólans.
Að öðru leyti áskilur skólastjóri/mótsnefnd sér rétt til að bjóða völdum einstaklingum til þátttöku.
Mótsnefnd mun jafnframt taka afstöðu til óska þeirra sem ekki ná stigalágmörkum en vilja tefla í stigahærri flokknum.
Teflt er samtímis í báðum flokkum en dagskráin er svohljóðandi:
- umferð. Laugardagur 18. maí kl. 11.-13.30.
- umferð: Laugardagur 18. maí 13.30 – 16.
- umferð: Laugardagur 18. maí 16-18.30
- umferð: Laugardagur 18. maí: 18.30-21.
- umferð: Sunnudagur 19. maí kl. 11-13.30
- umferð: Sunnudagur 19. maí kl. 13.30 -16.
- umferð: Sunnudagur 19. maí kl. 16. -18.30
- umferð: Sunnudagur 19. maí 27. maí kl. 18.30- 21.
Verðlaunaafhending fer fram strax að loknu móti.
Tímamörk í öllum umferðunum 30 30.
Keppendur geta tekið eina eða tvær ½-vinnings yfirsetur í fyrstu fimm umferðunum en tilkynna verður um yfirsetuna fyrir umferð og áður en raðað er í þá næstu
Tefldar verða átta umferðir eftir svissneska kerfinu í báðum flokkum.
Dagskrá mótsins verður með eftirfarandi hætti:
Skákmenn sem eru með minna en 1600 elo- stig geta óskað eftir því að tefla í flokki stigahærri keppenda og mun mótsnefnd taka afstöðu til þess og skila niðurstöðu með góðum fyrirvara.
Verðlaun í flokki 1600 elo +
- verðlaun: farmiði að verðmæti kr. 50 þús + uppihaldskostnaður á kr. 35 þús.
- verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.
- – 5. sæti Vandaðar skákbækur.
Auk þess verða veitt stigaflokkaverðlaun í mótinu:
1800 – 2000 elo:
- verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.
1600-1800 elo:
- verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.
Verðlaun í flokki 1600 elo-stig og minna og stigalausra:
- verðlaun: farmiði að verðmæti kr. 40 þús:
- – 3. verðlaun: vandaðar skákbækur að eigin vali.
Verðlaun keppenda sem eru undir 1200 elo-stig eða stigalausir:
- verðlaun: Vönduð skákbók og landsliðstreyja HENSON.
- verðlaun: Landsliðstreyja HENSON.
- verðlaun: Landsliðstreyja HENSON.
Mótsstig úrskurða verði keppendur jafnir að vinningum í báðum flokkum – nema í keppni um 1. sæti í stigahærri flokknum. Þá skal teflt um titilinn: Meistari Skákskóla Íslands 2019.
Mótshaldarinn áskilur sér rétt til að gera breytingar á fyrirfram boðaðri dagskrá.
Aðalstyrktaraðili Meistaramóts Skákskóla Íslands 2019 er GAMMA.













