Ísland tapaði 1½-2½, eftir hetjulega baráttu, gegn sterkri sveit Úkraínu á Ólympíumóti 16 ára og yngri sem hófst í gær í Corum á Tyrklandi. Vignir Vatnar Stefánsson, Stephan Briem og Alexander Oliver Mai gerðu allir jafntefli við mun stigahærri menn. Benedikt Briem tapaði eftir mikla baráttu á fjórða borði.
Í dag mætir íslenska sveitin sveit frá Írak. Sú sveit tapaði 0-4 í fyrstu umferð fyrir Ísrael þar sem sveitin mætti ekki til leiks – enda mega liðsmenn Íraks ekki tefla við Ísraela á alþjóðlegu vettvangi. Batel Goitom Haile teflir í dag á fjórða boði. Benedikt hvílir.
Umferðin hófst kl. 7 í morgun. Tvær umferðir eru tefldar í dag og hefst sú síðari kl. 14.
Íslenska liðið er það 27. sterkasta af 48 liðum. Reglurnar eru þannig að í hverju liði þarf að vera a.m.k. ein stúlka sem teflir hið minnsta 3 skákir af 9.
















