Magnús Carlsen og Wesley So munu mætast í úrslitum í heimsmeistaramótsins í Fischer-slembiskák. Það er ljóst eftir dramantísk undanúrslit í gær þar sem Carlsen og Wesley So unnu báðir örugga sigra á andstæðingum sínum Fabiano Caruana og Ian Nepomniachtchi.
Sá sem þetta skrifar er yfirdómari á mótinu. Hrókunarreglur eru flóknar í Fischer-slembiskák en í aðalatriðum ganga þær út á það að kóngurinn út á það kóngurinn endar á c1/g1 og hrókurinn á d1/f1. Góðar útskýringar um hrókun má finna hér.
Í skák Ian Nepomniachtchi og Wesley So gerðist það að kóngurinn í upphafsstöðunni var á e1 en hrókurinn á g1. So hrókaði með því að snerta kónginn fyrst. Nepo ákvað hins að lyfta upp hróknum fyrst og setja kónginn á g1 og svo hrókinn á f1. Skákstjórinn ákvað að grípa inn í og segja honum að hreyfa hrókinn – hann mætti ekki hrókera þar sem hann hefði snert hrókinn fyrst. „Snertur maður hreyfður“. Nepo mótmælti og ég kallaður til. Ég taldi mig ekkert annað geta gert en að staðfesta ákvörðun dómarans eftir að hafa skoðað lögin.
Annars kom góð tillaga úr netheimum.
A true pro would pick up the rook from g1, toss it up in the air, slide the king to g1 and the rook would land dead centre of f1. Press the clock, lean back in chair. Flex. #frchess
— MrDodgy (@ChessProblem) October 29, 2019
Fyrir mér og dómaranum var það aðalatriðið að rétt hefði verið að snerta kónginn fyrst. Nepo var afar ósáttur en tefldi áfram. Skákinni lauk með jafntefli og kærði Nepo úrskurðinn þegar í stað til áfrýjunarefndar sem sneri úrskurði skákstjóra við og ákvað að skákin yrði tefld upp á nýtt.
Ekki þótt verjanlegt að halda skákinni áfram þar sem menn gætu hafað skoðað stöðuna í tölvu. Forsenda nefndarinnar var sú að ætlan Nepo að hrókera hafi verið ljós þótt hann hafi hreyft hrókinn fyrst.
Formaðurinn áfrýjunarnefndarinnar fer fyrir málið hér
Here is the chairman of the appeals committee explaining the castling incident that took place between Nepo and So at the @fr_chess Championship. #frchess pic.twitter.com/WJRsmonb1a
— Chess.com (@chesscom) October 29, 2019
En er málið alveg svona einfalt? Torsten Bae, lögfræðingur og skákskýrandi NRK segir svo í sínu tísti:
Var det riktig at Nepo fikk lov til å starte rokadetrekk med å flytte tårnet? Utgangspunktet er klart nei jf sjakkreglene 4.4.2. Retningslinjer for fischersjakk gir ikke annen løsning og anbefaler å flytte kongen utenfor brettet først. Avgjørelsen forståelig, men raus mot Nepo. pic.twitter.com/Nr6HRVoZ6F
— Torstein Bae (@torbae) October 30, 2019
Skákin var tefld aftur og lauk með jafntefli. Þar hrókeraði Nepo á hefðbundin hátt með því að snerta kónginn fyrst en sendi greinarhöfundi þennan svip og sagði um leið hátt og snjallt. „Is this right“?

Reyndar fór það svo að Wesley So vann öruggan sigur í einvígi þeirra, 12,5-6,5. Nepo reyndar kenndi reyndar engum um tapið í einvíginu en sjálfum sér enda tefldi Wesley So einfaldlega mun betur í einvíginu.
So here comes the daily wisdom: play badly, but always be resourceful :/
— Yan Nepomniachtchi (@lachesisq) October 29, 2019
Magnús Carlsen vann öruggan sigur í einvígi hans Fabiano Caruana.
Caruana og Nepo tefla um þriðja sæti en Carlsen og So tefla til úrslita. Einvígin hefjast á morgun kl. 16:30 með tveim atskákum.
Nánar á Chess.com.















