100 ára afmælismót Taflfélags Vestmannaeyja

    0
    239
    Hvenær:
    29. ágúst, 2026 @ 12:00 – 30. ágúst, 2026 @ 16:00
    2026-08-29T12:00:00+00:00
    2026-08-30T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Þekkingarsetrið
    Ægisgata 2
    900 Vestmannaeyjar
    Ísland
    100 ára afmælismót Taflfélags Vestmannaeyja @ Þekkingarsetrið | Vestmannaeyjar | Vestmannaeyjabær | Ísland

    Þann 29. ágúst 2026 verða liðin 100 ár frá stofnun Taflfélags Vestmannaeyja, þessa verður minnst með skákmótum og blaðaútgáfu.

    Á þessum merku tímamótum stendur TV fyrir atskákmóti laugardaginn 29. ágúst nk. kl. 12.00 og ráðgert að því ljúki um kl. 18.00.

    Tímamörk verða 15 mín. + 5 sek. – veitingar í boði TV- tefldar átta umferðir – stutt neysluhlé eftir fjórar umferðir – engin mótsgjöld.

    Verðlaun – 1. sæti 100 þús. kr. – 2. verðlaun 75 þús. kr. – 3ju verðlaun 50 þús. kr. Skákstjóri frá Skáksambands Íslands

    Afmælismótin fara fram á opnu svæði í Þekkingarsetri Vestmannaeyja, Ægisgötu 2, 2. hæð. í sama húsnæði og fjölmenn fyrri atskákmót TV.

    Sunnudaginn 30. ágúst nk. kl. 13.00-16.00 fer fram hraðskákmót kl. 13.00 og reiknað með mótslokum kl. 16.00.

    Tímamörk 5 mín + 3 sek – engin mótsgjöld – 1. verðlaun 30 þús. kr. – 2. verðlaun 20 þús. kr. 3ju verðlaun 10 þús.kr.

    Herjólfur siglir sjö ferðir á dag á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Keppendur ofan á landi sem taka þátt í atskákmótinu geta t.d. tekið ferð frá Landeyjahöfn kl. 10.45 laugardaginn 29. ágúst – en þurfa að vera mættir 30 mín. fyrir brottför. Akstur frá höfuðborgarsvæðinu tekur tæpar 2 klst. Heppileg ferð fyrir þá sem taka þátt í atskákmótinu kl. 19.30 frá Eyjum – mæting 30 mín. fyrir brottför. Eingöngu 5 mín. gangur frá Herjólfi að mótstað í Eyjum. Fyrir þá sem taka þátt í báðum mótunum og gista í Eyjum þá fer Herjólfur frá Eyjum kl. 17.00 og 19.30 sunnudaginn 30. ágúst. nk. Nægt gistirými og fjölbreyttir veitingastaðir í Eyjum.

    Frétt frá Taflfélagi Vestmannaeyja

    - Auglýsing -