Opið hús Skákskóla Íslands

    0
    211
    Hvenær:
    8. ágúst, 2023 @ 13:00 – 18. ágúst, 2023 @ 17:00
    2023-08-08T13:00:00+00:00
    2023-08-18T17:00:00+00:00
    Hvar:
    Skákskóli Íslands
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    5000
    Opið hús Skákskóla Íslands @ Skákskóli Íslands | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Opna hús Skákskóla Íslands í ágúst hefst í húsnæði Skákskólans að Faxafeni 12 þriðjudaginn 8. ágúst nk. og verður hvern virkan dag frá kl. 13–17 alla virka daga á tímabilinu 8.–18. ágúst eða fram að þeim tíma er grunnskólarnir hefjast.

    Umsjónarmenn Opna hússins verða Helgi Ólafsson skólastjóri Skákskóla Íslands, sem jafnframt er ábyrgðarmaður, og hinir ungu skákmeistarar Birkir Ísak Jóhannsson og Benedikt Briem. Dagskráin verður með sama sniði og í hinu vel heppnaða opna húsi Skákskólans í júní sl.

    Opna húsið er ekki síst miðað við þau ungmenni, pilta og stúlkur, sem hyggja á þátttöku á mótum innanlands og utan í haust en framundan eru áskorendaflokku Íslandsmótsins í skák, haustmót taflfélaganna, Íslandsmót skákfélaga,  alþjóðleg unglingamót svo sem Norðurlandamót grunnskólasveita, EM ungmenna í Rúmeníu, HM barna í Egyptalandi og HM ungmenna 18 ára og yngri á Ítalíu. Miðað er við að þátttakendur séu á alþjóðlegum stigalista FIDE. Undantekningar verða gerðar ef sérstök ástæða þykir til.

    Verði er stillt í hóf og verður kr. 5000 pr. einstakling. Hægt er að skrá þátttakendur í sérstökum glugga á heimasíðu skákhreyfingarinnar á skák.is.

    Skráningarform

    Mæting er frjáls innan tímarammans en auðvitað eru þátttakendur hvattir til að mæta sem oftast. Þeir geta tekið með sér nesti en reglur um umgengi verða áréttaðar þegar opna húsið hefst. Lögð er áhersla á góða framkomu allra þátttakenda.

    Meðal þess sem Skákskólinn mun leggja til opna hússins er eftirfarandi:

    1. Klukkufjöltefli föstudagana 11. og 18. ágúst  við þekktan meistara með tímamörkunum 90 30. Skákir verða skrifaðar niður.
    2. Yfirferð efnis frá Chessable.
    3. Safnskákir þekktra skákmeistara teknar til meðferðar.
    4. Verkefnum við hæfi hvers þátttakenda verður dreift með reglulegu millibili.
    5. Taflmennska. Hraðskákmót, Hugur og hönd og fleira í þeim dúr.
    6. Bókasafn Skákskólans verður opið þátttakendum, hugbúnaður o.fl. Þá kaupir Skákskólinn inn nýtt og ferskt efni sérstaklega fyrir Opna húsið.
    - Auglýsing -