Skráning
Setja í mitt dagatal
Hvenær:
26. apríl, 2025 @ 13:00 – 16:00
2025-04-26T13:00:00+00:00
2025-04-26T16:00:00+00:00
Hvar:
Aflagrandi 40
Gjald:
Ókeypis

Barnaskákmót KR verður haldið laugardaginn 26. apríl 2025 og hefst það klukkan 13:00 í Samfélagshúsinu á Aflagranda 40.
Tímamörkin verða 8 mínútur á hvorn keppenda að viðbættum 3 sekúndum fyrir hvern leik (8 +3). Tefldar verða 7 umferðir.
Keppt verður í tveimur flokkum. Annars vegar 1.-3. bekkur og hins vegar 4.-8. bekkur. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga.
Efstu krakkarnir í hvorum flokki fá verðlaun.
Pizzur verða í boði fyrir skráða þátttakendur og aðstandendur frá 12:20.
- Auglýsing -








