Blönduós
Ísland

Fjórða mótið í bikarsyrpu stúlkna fer fram sunudaginn 15. júní kl. 13. Það er Kvennaskáknefnd Skáksambands Íslands sem stendur fyrir mótaröðinni, í samstarfi við skákfélög. Mót syrpunnar verða fjögur talsins og tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska kerfinu með tímamörkunum 5 3 á skák.
Fjórða mótið er unnið í samvinnu við Skáksamband Íslands og Blöndós, og fer fram á Blöndósi. Mótið er opið öllum stúlkum á grunnskólaaldri, og teflt verður í einum flokk en veitt verða verðlaun í tveimur aldursflokkum
Verðlaun í eldri flokki:
- verðlaun: 3 einkatímar hjá Skákskóla Íslands auk gjafabréfs
- verðlaun: 2 einkatímar hjá Skákskóla Íslands auk skemmtilegs gjafabréfs
- verðlaun: skemmtilegt gjafabréf
Verðlaun í yngri flokki:
- verðlaun: 3 einkatímar hjá Skákskóla Íslands auk skemmtilegs gjafabréfs
- verðlaun: 2 einkatímar hjá Skákskóla Íslands auk skemmtilegs gjafabréfs
- verðlaun: skemmtilegt gjafabréf
Að auki verða skemmtilegir happdrættisvinningar í báðum flokkum! Markmið mótaraðarinnar er að efla tengingu milli stúlkna á höfuðborgarsvæðinu og út á landi. Í skráningar hlekk er hægt að skrá ef vantar far norður.
Skráning fer fram í gegnum skráningarform hér að neðan. Hlökkum til að sjá ykkur!












