Smáratorg 3
201 Kópavogur
Ísland

Chess After Dark í samstarfi með Arena bjóða upp á CAD mótið í netskák. Mótið fer fram miðvikudagskvöldið 20. desember kl 20.00. Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2. Teknar verða pásur eftir umferðir 4 og 8. Mótið er öllum opið og er teflt í einum flokki.
Verðlaun:
- 30.000 kr gjafabréf á Arena
- 20.000 kr gjafabréf á Arena
- 10.000 kr gjafabréf á Arena
Aukaverðlaun:
- U2100: 10.000 kr gjafabréf á Arena
- U1800: 10.000 kr gjafabréf á Arena
- Unglingaverðlaun 15 ára og yngri: 10.000 kr gjafabréf á Arena
- Kvennaverðlaun: 10.000 kr gjafabréf á Arena
- Eldri skákmenn 60+: 10.000 kr gjafabréf á Arena
ATH til þess að vinna til verðlauna í mótinu – verða keppendur að vera á staðnum.
Mótið er öllum opið og er teflt í einum flokki.
Meira en velkomið að taka þátt í mótinu heima hjá sér, en þá er ekki hægt að vinna til verðlauna!
ARENA ætla bjóða okkur 50 tölvur – sem mun vonandi duga, annars fyrstir koma fyrstir fá.
ATH titilhafar í forgangi.
CAD brósar hvetja keppendur til að mæta snemma og vera lengi – Arena er að styðja vel við íslenskt skáklíf – við skulum því hjálpa þeim með því að kaupa af þeim mat og drykki ????
Aldrei að vita nema að CAD brósar verði með skákskýringar….
Hlökkum mikið til að sjá ykkur!
Skráning










