Friðriksmót Vinaskákfélagsins

    0
    504
    Hvenær:
    27. janúar, 2024 @ 14:00 – 17:00
    2024-01-27T14:00:00-01:00
    2024-01-27T17:00:00-01:00
    Hvar:
    Aflagrandi 40
    Aflagrandi 40
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Friðriksmót Vinaskákfélagsins @ Aflagrandi 40 | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Vinaskákfélagið mun halda glæsilegt skákmót í kringum fæðingardag Friðriks Ólafssonar. Skákmótið verður haldið laugardaginn 27 janúar klukkan 14:00 á Aflagranda 40.

    Vinaskákfélagið ætlar að halda þetta mót árlega og verður stórglæsilegur Farandbikar sem heitir “Friðriksbikarinn” sem sá sem vinnur fær nafn sitt skráð á hann.

    Við eigum von á að Friðrik Ólafsson muni koma á mótið og jafnvel taka þátt.

    Tefldar verða 7 umf., með 4 mín + 2 sek.

    Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

    Skákdómari verður Róbert Lagerman og mótstjóri verður Hörður Jónasson.

    Glæsileg verðlaun verða á mótinu.

    Verðlaun á mótið:

    1. sæti: Farandbikar + Gull verðl.pen. + 25,000 kr.
    2. sæti: Silfur verðl.pen. + 15,000 kr.
    3. sæti. Bronse verðl.pen. 10,000 kr.

    Kvennaverðlaun: Gull verðl.pen.

    50 ára og eldri: Gull verðl.pen.

    65 ára og eldri: Gull verðl.pen.

    16 ára og yngri: Gull verðl.pen.

    Starfsmenn á Aflagranda verða með kaffi, en Vinaskákfélagið kemur með 50 manna súkkulaðiköku. Stutt hlé verður svo eftir 4 umferðir svo skákmenn geti notið veitinganna sem best.

    Allir velkomnir.

    Hægt er að sjá hverjir hafi skráð sig hér:  Friðriksmót Vinaskákfélagsins 2024

    Skráning er á heimasíðu félagsins: Friðriksmót Vinaskákfélagsins 2024

    Einnig er hægt að skrá sig á staðnum.

    Mætið tímanlega.

    Kveðja stjórn Vinaskákfélagsins.

    - Auglýsing -