Hraðskákmót TR 2025

    0
    147
    Verðlaunahafar á hraðskákmóti TR. Mynd: Heimasíða TR.

    Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið í húsnæði félagsins að Faxafeni 12 miðvikudaginn 24. september kl. 18:30. Tefldar verða 9 umferðir eftir svissnesku kerfi og er umhugsunartíminn 4 mínútur auk þess sem 2 sekúndur bætast við eftir hvern leik (4+2). Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

    Þátttökugjald er 1.000kr fyrir 18 ára og eldri, en 500kr fyrir 17 ára og yngri – greiðist með korti eða reiðufé á staðnum. Félagsmenn TR sem eru 17 ára og yngri fá frítt í mótið. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin auk þess sem krýndur verður Hraðskákmeistari Taflfélags Reykjavíkur.

    Oddastig

    1. Buchholz – 1
    2. Buchholz 
    3. Sonnobon berger
    4. Innbyrðis úrslit

    Ekkert skráningarform. Skráning fer fram á staðnum og eru þátttakendur beðnir um að mæta tímanlega á skákstað.

    Að loknu hraðskákmótinu fer fram verðlaunaafhending fyrir Haustmót Taflfélags Reykjavíkur.

    - Auglýsing -