Skákdagsmót Skákdeildar Breiðabliks

    0
    432
    Hvenær:
    26. janúar, 2023 @ 14:15 – 17:00
    2023-01-26T14:15:00-01:00
    2023-01-26T17:00:00-01:00
    Hvar:
    Álfhólsskóli
    Álfhólsvegur 120
    200 Kópavogur
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Skákdagsmót Skákdeildar Breiðabliks @ Álfhólsskóli | Kópavogur | Ísland

    Á Skákdegi Íslands, þann 26. janúar, ætlar Skákdeild Breiðabliks í samstarfi við Skákskóla Íslands og SÍ að halda skákmót fyrir börn og unglinga f. 2007 og yngri.

    Mótið verður haldið í matsal Álfhólsskóla (fyrrverandi Hjallaskóli). Skipt eftir getu og aldri.

    1.-3. bekkur – kl. 14:15-15:15

    A – Peðaskák fyrir áhugasama óreynda keppendur í 1.-3. bekk
    B – 1. Bekkur miðað við að kunna mannganginn og að máta
    C – 2.-3. bekkur miðað við að kunna mannganginn og að máta

    4.-10. bekkur – kl. 15:30-17:00

    D – Stigalausir keppendur í 4.-7. bekk
    E – Stigalausir keppendur í 8.-10. bekk og allir keppendur með skákstig minna en 1300, óháð aldri
    F – Keppendur með skákstig 1300 eða meira

    Medalíur og verðlaun fyrir efstu sætin, glaðningur fyrir alla keppendur.
    Umferðafjöldi 3-5, umhugsunartími 5-7 mínútur, allt eftir fjölda keppenda.

    Skráning á skak.is fyrir kl. 20:00 á þriðjudag 24.janúar 2023

    Upplýsingar hjá Lenku: lenkaptacnikova@yahoo.com

    Hlökkum til að sjá ykkur! 😊
    Skákdeild Breiðabliks

    Skráningarform
    Þegar skráðir keppendur

    - Auglýsing -