Skákkeppni fyrirtækja og stofnana 2026

    0
    254
    Hvenær:
    22. apríl, 2026 allan daginn
    2026-04-22T00:00:00+00:00
    2026-04-23T00:00:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Skákkeppni fyrirtækja og stofnana 2026 @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Skákkeppni fyritækja og stofnana verður haldin miðvikudaginn 22. apríl næstkomandi klukkan 19:30 í Taflfélagi Reykjavíkur, Faxafeni 12.

    Mótið hafði legið í dvala í tæpan áratug en var um tíma eitt stærsta og best sótta skákmót hvers árs hjá Taflfélagi Reykjavíkur. Í fyrra, á 125 ára afmæli félagsins var mótið endurvakið.

    Núverandi meistarar eru Car Rental Iceland.

    Fyritæki tefla fram skáksveitum, og teflt er á þremur borðum. Tveir af þremur liðsmönnum hvers fyritækis þurfa að vera starfsmenn þess, en þriðji maður má vera lánsmaður. Taflfélag Reykjavíkur getur hjálpað til við að finna þriðja mann sé þörf á því.

    Stefnt er að því að tefla sjö umferðir eftir swissnesku kerfi með tímamörkunum 5+3, þ.e fimm mínútur á mann að viðbættum þremur sekúndum á hvern leik. Mótið stendur til að ganga 22:00 um kvöldið. Daginn eftir mótið, fimmtudaginn 24. apríl er sumardagurinn fyrsti! Mótið er reiknað til hraðskákstiga.

    Hvert fyrirtæki getur teflt fram mörgum skáksveitum, þá er sú sterkasta A-sveit, sú næststerkasta B- sveit og svo framvegis. Fyrirtæki sem stillir fram fleirum sveitum en einni, getur aðeins haft lánsmann í neðstu sveitinni sinni.

    Mótið er hugsað sem fjáröflunarmót fyrir metnaðarfullt starf Taflfélags Reykjavíkur. Félagið leggur áhersulu á barna- og unglingastarf, afreksstarf, og mótahald allt árið um kring. Ekkert taflfélag á Íslandi heldur fleiri skákviðburði en Taflfélag Reykjavíkur.

     

    Verðlaun veitt fyrir: 

    • Efstu þrjú sætin
    • Efsta lið án lánsmanns
    • Efsta stigalausa liðið (enginn liðsmanna með elo-stig)

    Þátttökugjöld:

    • A-sveit: 20.000kr
    • A-sveit ásamt auglýsingu: 35.000kr
    • B-sveit: 10.000kr
    • C- sveit og fleiri: 5000kr.

    Auglýsing felst í að fyrirtækið verður á lista yfir einn af bakhjörlum félagsins á Borgarskákmótinu sem fer fram í kringum afmæli Reykjavíkurborgar í lok ágúst.

    Skráningarform 

    Þegar skráðar sveitir 

    - Auglýsing -