Skákþing Norðlendinga 2025

    0
    160
    Hvenær:
    5. september, 2025 @ 18:00 – 7. september, 2025 @ 14:00
    2025-09-05T18:00:00+00:00
    2025-09-07T14:00:00+00:00
    Hvar:
    Brekkuskóli
    MWH3+FR2
    Skólastígur, 600 Akureyri
    Ísland
    Gjald:
    4000
    Tengiliður:
    Skákfélag Akureyrar
    Skákþing Norðlendinga 2025 @ Brekkuskóli | Akureyri | Akureyrarbær | Ísland

    Skákþing Norðlendinga á sér 90 ára sögu og hefur verið haldið á hverju ári frá 1935. Ekkert skákmótahald á Íslandi á sér jafnlanga óslitna sögu.

    Að þessu sinni verður mótið haldið á Akureyri, í sal Brekkuskóla.
    Mótið er opið öllum, en aðeins keppandi af Norðurlandi getur unnið meistaratitilinn sjálfan.

    Á mótinu verða tefldar 11 atskákir (15+10). Auk þess verður haldið hraðskákmót.

    Þátttökugjald er kr. 4.000 (kr. 1.000 fyrir börn).


    Dagskrá

    Föstudagur 5. september

    • Kl. 18.00 – 1.–4. umferð

    Laugardagur 6. september

    • Kl. 11.00 – 5.–8. umferð

    • Kl. 20.00 – Hraðskákmót Norðlendinga

    Sunnudagur 7. september

    • Kl. 11.00 – 9.–11. umferð


    Verðlaun

    Aðalmót:

      1. sæti – 85.000 kr.

      1. sæti – 55.000 kr.

      1. sæti – 30.000 kr.

      1. sæti – 20.000 kr.

    Stigaverðlaun:

    • 1799 og minna – 20.000 kr.

    • Stigalausir – 15.000 kr.

    Hraðskákmótið:

    • Fyrstu verðlaun – 20.000 kr.

    Skráning

    Skráningarfrestur fimmtudagskvöldið 4. september á miðnætti

    Vert er að vekja athygli á að keppendur í lokuðum flokkum á Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur geta frestað sínum skákum vilji þeir taka þátt í báðum mótum.

    - Auglýsing -