Chess.com

Undanrásir Íslandsmótsins í netskák fara fram miðvikudaginn 27. ágúst á Chess.com og hefstjast kl. 19.30.
Til að hafa keppnisrétt þurfa viðkomandi að hafa rétt á því að tefla fyrir Íslands hönd og vera meðlimir í TeamIceland á Chess.com.
Það er nauðsynlegt að skrá rétt nafn í skráningarformið til að eiga möguleika að fá sæti í úrslitunum. Þeir sem hafa þegar keppnisrétt í úrslitunum mega ekki tefla í undanrásunum.
Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport.
Mótið fer fram með áþekku fyrirkomulagi og á síðasta ári. Undanrásir fara fram miðvikudaginn 27. ágúst og hefjast kl. 19:30 en sjálf 16 manna úrslitin hefjast 7. september.
Keppendur í 16 manna úrslitum verða valdir á eftirfarandi hátt.
- Keppendur sem komust í átta manna úrslita á Síminn Invitational vorið 2025 (varamenn úr undanrásunum núna)
- Þrír stigahæstu skákmenn landsins með virk FIDE-hraðskákstig 1.agúst 2025 sem falla ekki undir nr. 1 (varamenn næstu virku menn á hraðskákstigum)
- Fjórir efstu í undanrásunum sem fram fara 27. ágúst (varamenn úr undanrásunum)
- Efsta kona í undanrásunum sem fram fara 27. ágúst (varamenn næstu konur úr undanrásunum) Ef kona nær að tryggja sig inn í gegnum undanrásirnar (lið 3) bætist þetta sæti við undanrásirnar óháð kyni.
Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.
Gert er ráð fyrir að úrslitin fari fram 30. nóvember. Nánar verður greint frá fyrirkomulagi og dagsetningum úrslitakeppninnar á næstu dögum.
Verðlaun í aðalkeppninni
- 175.000 kr.
- 75.000 kr.
Engin verðlaun, nema keppnisréttur í úrslitakeppninni, eru í undanrásunum.
Eftirtaldir hafa keppnisrétt á Íslandsmótinu í netskák og hafa þegar fengið boð um þátttöku. Átta fyrstu vegna frammistöðu í fyrra og næstu þrír vegna stöðu sinna hraðskákstigalista FIDE. Að minnsta fimm sæti ráðast svo í undanrásunum.
- GM Hannes Hlífar Stefánsson
- GM Vignir Vatnar Stefánsson
- GM Helgi Ólafsson
- IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson
- GM Bragi Þorfinnsson
- FM Ingvar Þór Jóhannesson
- IM Hilmir Freyr Heimisson
- FM Símon Þórhallsson
- GM Helgi Áss Grétarsson
- IM Björn Þorfinnsson
- IM Jón Viktor Gunnarsson
- Undanrásir
- Undanrásir
- Undanrásir
- Undanrásir
- Undanrásir (kona)










