Skákþing Reykjavíkur 2026

    0
    324
    Hvenær:
    14. janúar, 2026 @ 18:30 – 23:00
    2026-01-14T18:30:00-01:00
    2026-01-14T23:00:00-01:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Skákþing Reykjavíkur 2026 @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Skákþing Reykjavíkur 2026 hefst miðvikudaginn 7. janúar kl. 18.30. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

    Keppendur geta tekið tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan. Ef taka á yfirsetu í 1. umferð skal merkja við það á neðangreindu skráningarformi. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu. Ekki eru leyfðar frestanir í mótinu. Hvað er yfirseta?

    Teflt er á sunnudögum klukkan 13:00 og miðvikudögum klukkan 18:30.

    Dagskrá:

    1. umferð miðvikudag 7. jan 18:30
    2. umferð sunnudag 11. jan 13:00
    3. umferð miðvikudag 14. jan 18:30
    4. umferð sunnudag 18. jan 13:00
    5. umferð miðvikudag 21. jan kl. 18:30
    6. umferð sunnudag 25. jan 13:00
    7. umferð miðvikudag 28. jan 18:30
    8. umferð sunnudag 1. feb 13:00
    9. umferð miðvikudag 4. feb 18:30

    Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

    Tímamörk:

    90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.

    Skákstjórn:

    Daði Ómarsson og Jon Olav Fivelstad

    Aðalverðlaun

    • 1. sæti kr. 110.000
    • 2. sæti kr. 55.000
    • 3. sæti kr. 35.000

    Aukaverðlaun

    Aukaverðlaun eru þannig að frá og með 11. skákmanni miðað við upphafsröð í mótinu (strarting rank) verður skákmönnum, þaðan og niður, skipt í fjórar jafnstórar stigagrúbbur. Sem dæmi: Taki 50 manns þátt í mótinu þá væri þetta svona:

    Efstu 10 keppa ekki um aukaverðlan, heldur aðalverðlaun.

    Keppendur númer 11.-20. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun A.

    Keppendur númer 21.-30. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun B.

    Keppendur númer 31.-40. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun C.

    Keppendur númer 41.-50. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun D.

    Sá sem endar mótið efstur í A grúbbu vinnur því aukaverðlaun A, og svo framvegis.

    Aukverðlaun í öllum flokkunum fjórum eru 12.500 krónur.

    Oddastig (tiebreaks):

    1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger

    Þátttökugjöld:

    kr. 8.000 fyrir 18 ára og eldri.

    kr. 4.000 fyrir 17 ára og yngri.

    Frítt fyrir Stórmeistara

    Skráningarform:

    Skráningaform: U-17

    Skráðir keppendur:

    Skrá yfirsetu:

    Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Oliver Aron Jóhannesson.

    Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.

    Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

    - Auglýsing -