Sunnudagshraðskákmót TR

    0
    677
    Hvenær:
    18. maí, 2025 @ 12:00 – 14:30
    2025-05-18T12:00:00+00:00
    2025-05-18T14:30:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Sunnudagshraðskákmót TR @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Haldin verða hraðskákmót í hádeginu á sunnudögum einu sinni í mánuði nú í vor og sumar og ef vel gengur verður haldið áfram með mótin í haust. Tefldar verða 7. umferðir með tímamörkunum 5+3. Þá eru 5 mínútur á mann og 3 sekúndur bætast við hvern leik. Áætla má að mótin verði um tvær klukkustundir, standi frá 12:00-14:00.

    Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 12:00. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn.

    Dagskrá sunnudagshraðskákmótanna frá maí til ágúst:

    Mót 1

    • sunnudaginn 18. maí

    Mót 2 

    • sunnudaginn 29. júní

    sunnudaginn 20. júlí verður Viðeyjarmótið

    Mót 3 

    • sunnudaginn 27. júlí

    Mót 4

    • sunnudaginn 24. ágúst

    Þátttökugjöld:

    Félagsmenn TR 18 ára og eldri: 500kr.

    Félagsmenn TR 17 ára og yngri: Ókeypis

    Utanfélagsmenn 18 ára og eldri: 1000kr.

    Utanfélagsmenn 17 ára og yngri: 500kr.

    Utanfélagsmenn: 10 skipta klippikort: 7500kr.

    Veitt eru verðlaun fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).

    - Auglýsing -