Lágmúli 5
108 Reykjavík
Ísland

VignirVatnar.is heldur áfram að halda skemmtilega mótaröð með Snóker og Poolstofunni í Lágmúla og áfram er haldið mót einu sinni í mánuði. Næsta mót er haldið föstudaginn 25. apríl klukkan 18:00!
Staðsetning er sem fyrr í Lágmúla 5 í húsakynnum Snóker & Pool-stofunnar.
Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2.
Athugið! aðeins 40 manns geta tekið þátt og yfirleitt komast færri að en vilja. Við ítrekum mikilvægi þess að skrá sig tímanlega!
Mótið er eingöngu fyrir skákmenn 18 ára og eldri og er mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Þátttökugjald er 3000kr. (drykkur innifalinn)
Frábær tilboð verða á barnum meðan á móti stendur!
Áskrifendur að vignirvatnar.is þurfa ekki að borga þátttökugjald. (2.980 kr)
Heildarverðlaun eru að andvirði 150.000 kr.
Verðlaun eru veitt fyrir efstu 3 sæti en einnig verða veitt verðlaun fyrir efsta sæti í eftirfarandi flokkum:
-
U-2000 ELO
-
U-1800 ELO
-
Stigalausir
Ef einhverjar spurningar vakna – ekki hika við að hafa samband á vignirvatnar.is@gmail.com
Skráningu lýkur í hádeginu á föstudaginn!
Hlökkum til að sjá ykkur!
Reikningsnúmer: 0545-26-070203
Kennitala: 070203-2860











