Laugardaginn 19. janúar fara fram síðustu viðureignirnar í heimsmótinu í netskák.
Við byrjum á að mæta liði Serbíu í lokaumferðinni í hraðskákinni. Lið Íslands er sem stendur í 3. sæti með 7 stig og gæti hækkað sig upp í 2. sæti með sigri í þessari viðureign.
Því næst fara fram tvær síðustu umferðirnar í leifturskákinni. Við byrjum á að tefla við Brasilíu kl. 20:40 og mætum svo Venesúela kl. 21:00. Lið Íslands er sem stendur í 2. sæti í leifturskákinni og getur tryggt sætið með sigri í þessum viðureignum.
—–
Nýliðar eru sérstaklega velkomnir og það eina sem þeir þurfa að gera er að fara á síðu liðsins á chess.com og smella á join. Allir geta tekið þátt!
https://www.chess.com/club/team-iceland
—–
Dagskrá:
20:00 – Hraðskák (5+2) gegn Serbíu – Lokaumferð í hraðskákinni.
https://www.chess.com/live#tm=2310
20:40 – Leifturskák 1+1 gegn Brasilíu
https://www.chess.com/live#tm=2290
21:00 – Leifturskák (1+1) gegn Venesúela – Lokaumferð í leifturskákinni
—–
Staðan í hraðskákinni:
https://docs.google.com/spreadsheets/d/16JRaTtcQFuGwgaP8uGll_19RNxGGhARsakE62oWmtuk/edit?usp=sharing
Staðan í leifturskákinni:

HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Nýliðar þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.
Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!
TENGLAR
- Heimasíða Team Iceland á Facebook: Hér
- Allar viðureignir Team Iceland til þessa: Hér
- Meðlimir Team Iceland: Hér
- Leifturskákin, staða og pörun: Hér
- Hraðskákin, staða og pörun: Hér
- Reglur LCWL: Hér











