Sjöundi fundur stjórnar SÍ starfsárið 2025-26 var haldin 15. janúar sl.
Eftirfarandi póstur var sendur á aðildarfélög Skáksambands Íslands í gær.
Fundargerðir SÍ má finna hér: https://skak.is/skaksamband/fundargerdir/

————–

Kæru formenn skákfélaga,

Stjórn Skáksambands Íslands hélt stjórnarfund þann 15. janúar sl. Hér fyrir neðan er samantekt á helstu atriðum sem rædd voru og ákvörðunum sem teknar voru á fundinum.

Mót og viðburðir framundan

  • Fjölmörg mót og viðburðir eru á dagskrá næstu mánuði, þar á meðal:
  • Boðsmót Símans (hefst 18. janúar)
  • Íslandsmót stúlkna í skólaskák (24. janúar)
  • Skákdagurinn (26. janúar)
  • Íslandsmót kvenna (6.–11. febrúar)
  • Íslandsmót skákfélaga (5.–8. mars)
  • Reykjavík Open (25.–31. mars)
  • Skákþing Íslands (29. apríl – 10. maí)
  • Landsmót í skólaskák (1.–3. maí)

Auk þessa eru á dagskrá námskeið, alþjóðleg mót og ungmennamót. Nánari upplýsingar verða auglýstar á skak.is og vil ég benda á mótaáætlun þar sem hægt er að fylgjast með öllu sem er framundan.

Landsmót í skólaskák – nýtt fyrirkomulag

Samþykktar voru breytingar á reglum Landsmóts í skólaskák. Reglugerðin hefur verið uppfærð til að endurspegla breyttan iðkendafjölda og svæðaskiptingu. Nýjar reglur verða birtar á vef Skáksambandsins á næstu dögum.

Nýjar styrktarreglur

Drög að nýjum styrktarreglum voru samþykkt:
– Styrkjum verður úthlutað tvisvar á ári.
– Reglurnar verða einfaldari og skýrari.
– Umsóknir ungmenna fara til umfjöllunar hjá æskulýðsnefnd.
– Afreksviðmið tryggja ekki sjálfkrafa styrk, heldur eru notuð sem leiðbeinandi viðmið.

Reglurnar taka gildi í júní 2026 og munu eldri reglur þá falla úr gildi.

Afrekssjóður í skák

Stjórn hefur óskað eftir fundi í ráðuneyti til að ræða fyrirkomulag Afrekssjóðs í skák og forsendur úthlutana.

Samráð við aðildarfélög

Áformað er að halda opinn samráðsfund með formönnum skákfélaga þar sem rætt verður um samstarf, verkefni og framtíðarsýn. Nánari upplýsingar munu berast síðar.

Önnur mál

Samfélagsmiðlaverkefni er í vinnslu.
Rætt var um verðlaun, þátttökugjöld og afslætti á þátttökugjöldum í mótum. Engar endanlegar ákvarðanir voru teknar.

Við þökkum ykkur fyrir gott samstarf og mikilvægt starf í þágu íslenskrar skákar. Ef þið hafið spurningar eða ábendingar hvetjum við ykkur til að hafa samband.

Bestu kveðjur,

Jóhanna Björg

Forseti Skáksambands Íslands

- Auglýsing -