Alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson hélt í gær eins vinnings forystu sinni á Skákþingi Reykjavíkur þegar hann lagði Jóhann Ingvason að velli. Tveir skákmenn eru einum vinningi á eftir Degi en það eru kandídatameistararnir Benedikt Briem og Guðmundur Halldórsson.

Á efsta hafði Dagur hvítt gegn Jóhanni og upp kom uppskiptaafbrigðið í slavenskri vörn. Jóhann lék snemma ónákvæmt og fékk erfiða stöðu og fljótlega nánast óteflanlegt tafl þar sem Dagur stjórnaði svörtu reitunum á borðinu og þungu menn hans með heljartök á línu og hótanir um að taka yfir sjöundu reitaröð. Dagur kláraði dæmið af fagmennsku.

Benedikt Briem hélt endurkomu sinni áfram með því að leggja FIDE-meistarann Halldór Grétar Einarsson að velli. Skákin var mjög sviptingasöm og tíð eigendaskipti áttu sér stað eftir rólegt miðtafl framan af. Halldór tók yfirhöndina en gaf svo frá sér frumkvæðið og missti svo skákina niður í tap í endatafli sem svartur hefði átt að halda. Smá heppni hjá Benedikt en það má líka!

Guðmundur Halldórsson lhélt sér við toppinn með því að leggja FIDE-meistarann Bárð Örn Birkisson að velli. Í miðtaflinu hóf Guðmundur að plokka peð svarts eitt af öðru og jaðraði á köflum við að ein hönd dyggði ekki til að telja umframpeð Guðmundar…þau dugðu til að lokum.

Dagur hefur 6,5 vinning en 5,5 vinning hafa þeir Benedikt og Guðmundur. Aðrir eru ólíklegir að berjast um efsta sætið að svo stöddu.

Skákþingið heldur áfram á sunnudaginn þegar áttunda umferð verður tefld. Dagur hefur aftur hvítt og mætir Benedikt en Guðmundur þarf sigur gegn Arnari Milutin með svörtu til að halda sér í baráttunni.

MYNDIR

_D0A1992

Almennt um mótið

Teflt er á sunnudögum klukkan 13:00 og miðvikudögum klukkan 18:30.

Dagskrá:

  1. umferð miðvikudag 7. jan 18:30
  2. umferð sunnudag 11. jan 13:00
  3. umferð miðvikudag 14. jan 18:30
  4. umferð sunnudag 18. jan 13:00
  5. umferð miðvikudag 21. jan kl. 18:30
  6. umferð sunnudag 25. jan 13:00
  7. umferð miðvikudag 28. jan 18:30
  8. umferð sunnudag 1. feb 13:00
  9. umferð miðvikudag 4. feb 18:30

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Tímamörk:

90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.

Skákstjórn:

Daði Ómarsson og Jon Olav Fivelstad

Aðalverðlaun

  • 1. sæti kr. 110.000
  • 2. sæti kr. 55.000
  • 3. sæti kr. 35.000

Aukaverðlaun

Aukaverðlaun eru þannig að frá og með 11. skákmanni miðað við upphafsröð í mótinu (strarting rank) verður skákmönnum, þaðan og niður, skipt í fjórar jafnstórar stigagrúbbur. Sem dæmi: Taki 50 manns þátt í mótinu þá væri þetta svona:

Efstu 10 keppa ekki um aukaverðlan, heldur aðalverðlaun.

Keppendur númer 11.-20. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun A.

Keppendur númer 21.-30. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun B.

Keppendur númer 31.-40. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun C.

Keppendur númer 41.-50. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun D.

Sá sem endar mótið efstur í A grúbbu vinnur því aukaverðlaun A, og svo framvegis.

Aukverðlaun í öllum flokkunum fjórum eru 12.500 krónur.

Oddastig (tiebreaks):

1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger

Þátttökugjöld: 

kr. 8.000 fyrir 18 ára og eldri.

kr. 4.000 fyrir 17 ára og yngri.

Frítt fyrir Stórmeistara

Skráningarform:

Skráningaform: U-17

Skráðir keppendur:

Skrá yfirsetu:

Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Oliver Aron Jóhannesson.

Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.

Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

- Auglýsing -