Íslandsmót grunnskólasveita – stúlknaflokkar fóru fram 24. janúar sl. í skákhöllinni í Faxafeni 12.

Fimmtán sveitir tóku þátt og svo fór að Hvaleyrarskóli hampaði sigri í elsta flokki (6.-10. bekkur), Landakotsskóli í miðflokki (3.-5. bekkur) og Rimaskólí yngsta flokki (1.-2. bekkur)

Elsti flokkur (6.-10. bekkur)

Þar börðust Hvaleyarskóli og Rimaskóli um sigurinn. Svo fór að Hvaleyrarskóli hafði betur en a- og b-sveitir Rimaskóla urðu í 2.-3. sæti.

Sveit Íslandsmeistara Hvaleyrarskóla skipuðu: Katrín Ósk Tómasdóttir, Emilía Klara Tómasdóttir, Sigurrós Hansen, Ísabella Agla Óskarsdóttir. Liðsstjóri var Ægir Magnússon.

Lokastaðan á Chess-Results

Miðflokkur (3.-5. bekkur)

Í miðflokki hafði Landakotsskóla mikla yfirburði. A-sveit skólans varð í 1. sæti og b-sveitin í í 2. sæti. Rimaskóli tók þriðja sætið.

Sveit Íslandsmeistara Landakotsskóla skipuðu: Miroslava Skibina, Praanvi Kandukari og Sarvina Jasline Nirmal Johnpaul. Liðsstjori var Dmitry Skibin.

Lokastaðan á Chess-Results

Yngsti flokkur (1.-2. bekkur)

Þar börðust Rimaskóli og Landakotsskóli um sigurinn. Svo fór að Rimaskóli hafði betur. Vesturbæjarskóli tók bronsið.

Skáksveit Íslandsmeistara Rimaskóla skipuðu Elínbjörg Hlynsdóttir, Guðrún Helga Pedersen og Selma Ýr Öldudóttir. Liðsstjóri var Björn Ívar Karlsson.

Lokastaðan á Chess-Results

Skákstjórar voru Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Arnar Ingi Njarðarson, Iðunn Helgadóttir og Auðbergur Magnússon.

Myndalbúm mótsins (Tómas Tandri Jóhannsson)

- Auglýsing -