Jóhanna vann Liss með glæsilegri drottningarfórn.

Önnur umferð Íslandsmót kvenna fór fram í kvöld. Lenka Ptácníková (2107) er efst með fullt hús en hún vann Batel Goitom Haile (1625) í kvöld. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1990) átti hins vegar skák kvöldsins þegar hún lagði Lisseth Acevedo Mendez (1829) að velli með laglegri drottningarfórn. Tinna Kristín Finnbogadóttir (1843) og Hrund Hauksdóttir (1819) gerðu jafntefli.

Lenka er með 2 vinninga, Hrund með 1½ vinning og Jóhanna Björg 1 vinning en eftir bara eina skák.

Ingvar fer yfir umferð kvöldins á jútjúb og skeytir inn myndbandi þar sem menn geta séð drottningarfórn Jóhönnu!

Þriðja umferð fer fram á morgun. Þá mætast meðal annars Hrund og Lenka.