Minningarskákmót um Björn Sölva verður haldið mánudaginn 28 maí kl: 13, í Vin að Hverfisgötu 47. FIDE-meistarinn Björn Sölvi Sigurjónsson fæddist 26 janúar 1949 á skákdeginum sjálfum og lést á Landspítalanum þann 22. desember 2011 eftir veikindi. Hann varð því 61 árs. Björn varð þrívegis skákmeistari Kópavogs auk þess að verða bæði Reykjavíkur- og Akureyrarmeistari.

Hann keppti einnig í bréfskák, m.a. á Ólympíumóti og á heimsmóti 1990 þar sem hann sigraði. Björn varð alþjóðlegur FIDE-meistari árið 1996 og skákmeistari Sjálfsbjargar 2000.

FIDE–meistarinn Björn Sölvi kom til liðs við Vinaskákfélagið 2007, en það ár tók félagið fyrst þátt í Íslandsmóti skákfélaga. Björn Sölvi var kallaður „jókerinn“ í liðinu. Við í Vinaskákfélaginu ætlum að minnast hans með skákmóti í Vin.

Tefldar verða 6 umferðir með 7 mínútur á skák. Skipuleggjandi verður Hrafn Jökulsson. Skákstjóri verður Hörður Jónasson. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

Í hléi verður boðið upp á kaffi og vöfflur. Góð verðlaun verða í boði. Þið getið skráð ykkur á mótið á gula kassanum efst á síðunni á skak.is. Einnig getið þið skráð ykkur á staðnum.

Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.

Allir velkomnir!!

- Auglýsing -