Meistaramót  Skákskóla Íslands fyrir starfsárið 2017/2018 fer fram dagana 25.–27. maí og verður í tveim styrkleika/stigaflokkum. Annar flokkurinn verður skipaður keppendum sem hafa 1600 alþjóleg elo-stig eða meira en hinn flokkurinn er skipaður keppendum sem eru undir 1600 elo stigum eða stigalausir.

Vakin er athygli á því að tímamörk eru mismunandi í flokkunum og færri umferðir verða tefldar í efri styrkleikaflokknum en þar er teflt um sæmdarheitið Meistari Skákskóla Íslands. Núverandi meistari Skákskólans er Hilmir Freyr Heimisson.  

Þátttökurétt hafa nemendur skólans og allir þeir sem tekið hafa þátt í námskeiðum á vegum skólans eða hlotið þjálfun á vegum skólans.

Að öðru leyti áskilur skólastjóri/mótsnefnd sér rétt til að bjóða völdum einstaklingum til þátttöku.

Mótsnefnd mun jafnframt taka afstöðu til óska þeirra sem ekki ná stigalágmörkum en vilja tefla í stigahærri flokknum.

Flokkur undir 1600–elo-stigum og stigalausir:

  1. umferð: Föstudagur 25. maí kl. 18:00
  2. umferð: Föstudagur 25. maí kl. 20:00
  3. umferð. Laugardagur 26. maí kl. 10:00
  4. umferð: Laugardagur 26. maí kl. 13:00
  5. umferð: Laugardagur 26. maí kl. 16:00
  6. umferð: Sunnudagur 27. maí kl. 10:00
  7. umferð: Sunnudagur 27. maí kl. 13:00
  8. umferð: Sunnudagur 27. maí kl. 16:00

Tímamörk í öllum umferðunum 30 30.

Keppendur geta tekið eina eða tvær ½-vinnings yfirsetur í fyrstu fimm umferðunum en tilkynna verður um yfirsetuna fyrir umferð og áður en raðað er í þá næstu 

Flokkur keppenda með 1600 – elo stig og meira.

Tefldar verða sex umferðir eftir svissneska kerfinu í báðum flokkum.

Dagskrá mótsins verður með eftirfarandi hætti: 

Flokkur 1600 alþjóðleg elo – stig og ofar:

  1. umferð: Föstudagurinn 25. maí kl. 16
  2. umferð: Föstudagurinn 25. maí kl. 20
  1. umferð. Laugardagurinn 26. maí kl. 10
  2. umferð: Laugardagurinn 26. maí kl. 15
  1. umferð: Sunnudagurinn 27. maí kl. 10
  2. umferð: Sunnudagurinn 27. maí kl. 15

Tímamörk í öllum umferðunum 90 30.

Keppendur geta tekið eða tvær ½-vinnings yfirsetu í fyrstu fjórum umferðunum en verða að tilkynna um yfirsetuna fyrir umferðina og áður en raðað er í næstu umferð.

Skákmenn sem eru með minna en 1600 elo- stig geta óskað eftir því að tefla í flokki stigahærri keppenda og mun mótsnefnd taka afstöðu til þess og skila niðurstöðu með góðum fyrirvara.   

Verðlaun í flokki 1600 elo + 

  1. verðlaun: farmiði að verðmæti kr. 50 þús + uppihaldskostnaður á kr. 35 þús.
  2. verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.
  3. –5. sæti Vandaðar skákbækur.

Auk þess verða veitt stigaflokkaverðlaun í mótinu:

1800 – 2000 elo:

  1. verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.

1600-1800 elo:

  1. verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.

Verðlaun í flokki 1600 elo og minna og stigalausra:

  1. verðlaun: farmiði að verðmæti kr. 40 þús:
  2. –3. verðlaun: vandaðar skákbækur að eigin vali.

Verðlaun keppenda sem eru undir 1200 elo stig eða stigalausir:

  1. verðlaun: Vönduð skákbók og landsliðstreyja „tólfunnar“.
  2. verðlaun: Landsliðstreyja „tólfunnar“.
  3. verðlaun: Landsliðstreyja „tólfunnar“.

Mótsstig úrskurða verði keppendur jafnir að vinningum í báðum flokkum –  nema í keppni um 1. sæti í stigahærri flokknum. Þá skal teflt um titilinn:

Meistari Skákskóla Íslands 2018. 

Aðalstyrktaraðili Meistaramóts Skákskóla Íslands 2018 er GAMMA.

Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst)

Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér

- Auglýsing -