Vignir Vatnar Stefánsson sigraði á hraðkvöldi Hugins sem fram fór sl. mánudagskvöldið 11. júní. Sigurinn hjá honum var býsna öruggur 7 vinningar af sjö mögulegum. Eitt tap eða svo hefði ekki skipt máli því næstu menn voru með 5 vinninga Það voru Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Óskar Víkingur Davíðsson. Jóhanna var hærri á stigum og annað sætið var hennar og Óskar var þriðji.
Talan 5 kom upp í happdrættinu sem var tala Atla Jóhanna Leósson. Tölvan virðist halda sig mikið við tölurnar 4 og 5 undanfarið í drættinum en lítið við því að gera. Atli Jóhann valdi miða frá Saffran og Vignir Vatnar hélt sig við Dominos. Nú verður gert hlé á þessum skákkvöldum í sumar. Næsti viðburður hjá Huginn hér fyrir sunnan er Mjóddarmótið laugardaginn 7. júlí.
Lokastaðan á hraðkvöldinu:
- Vignir Vatnar Stefánsson, 7v/7
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, 5v
- Óskar Víkingur Davíðsson, 5v
- Vigfús Ó. Vigfússon, 4,5v
- Atli Jóhann Leósson, 4,5v
- Gunnar Nikulásson, 3v
- Arnar Milutin Heiðarsson, 3v
- Stefán Orri Davíðsson, 3v
- Björn Brynjúlfur Björnsson, 2,5v
- Sigurður Freyr Jónatansson, 2,5
- Björgvin Kristbergsson, 1v
- Magnús Þorlákur Lúðvíksson, 1v
Lokastaðan í chess-results: