Séð yfir mótsalinn. Ef vel er gáð má finna Gauta - kannski!

Unglingameistari Íslands, Gauti Páll Jónsson (2074), vann ekki bara alþjóðlegan meistara á HSG-mótinu í Hollandi heldur lagði hann einnig FIDE-meistara að velli. Í fjórðu umferð, sem tefld var í gær, vann hann hollenska FIDE-meistarann Joris Kokje (2258).

Ekki gekk hins vegar vel í lokaumferðunum tveim í dag sem báðar töpuðust.  Gauti hlaut 2,5 vinninga í skákunum sex en hækkar engu að síður um 24 skákstig.

Í viðtali við Skák.is eftir mótið sagði Gauti vera sáttur því þótt ekki hafi gengið vel í dag hafi hann teflt vel.

Hollenski stórmeistarinn og Íslandsvinurinn, Jorden van Foreest, sigraði á mótinu.

Meðfylgjandi eru sigurskák Gauta gegn ísraelska alþjóðlega meistaranum Yochanan Afek (2259)

Loading embedded chess game…

- Auglýsing -