Þó að ekki sé mikil hefð fyrir skákmótahaldi hér á landi yfir hásumarið þá er því öðruvísi farið víða annars staðar. Hollendingar og Svíar hafa lengi valið meistaramótunum stað og stund á þessum árstíma og fyrir skemmstu voru bæði þessi mót til lykta leitt. Margir þátttakendur eru Íslendingum að góðu kunnir, hafa teflt hér á Reykjavíkurskákmótum og í öðrum keppnum.
Efsti flokkur hollenska meistaramótsins dró til sín átta stórmeistara. Til úrslita þessa móts er litið þegar valið er í landslið fyrir Ólympíumót.
Sigurvegarinn Sergei Tiviakov, sem fæddist í Krasnodar í Rússlandi árið 1973 og hefur af og til átt sæti í liði Hollands frá því hann fluttist þangað árið 1998, náði snemma forystunni og lét hana ekki af hendi:
1. Tiviakov 5½ v. 2.-5. Sokolov, L’Ami, Van Foreest og Van den Doel 4 v. 6. Ernst 3 v. 7. Van Wely 2 v. 8. Leenhouts 1½ v.
Í mikilvægustu sigurskák Tiviakovs yfir vini okkar Ivan Sokolov var eins og sá síðarnefndi hefði gleymt eitt augnablik að leppun táknar yfirleitt ákveðna spennu. Sá sem nær að leppa t.d. hrók, eins og Tiviakov gerði í eftirfarandi skák, hefur vopn í hendi; að viðhalda leppuninni getur stundum verið stysta leiðin til sigurs. Þeim sem verður að þola slíka leppun er hollast að komast út úr henni sem fyrst. Góðir skákmenn ganga stundum gegn slíkum leiðbeiningum – og jafnvel gegn betri samvisku. Í stað þess að víkja drottningu sinni til hliðar, sem var eina leiðin til að verja stöðuna, opnaði Ivan á aðra leppun. Refsingin lét ekki á sér standa:
Hollenska meistaramótið 2018; 3. umferð:
Sergei Tiviakov – Ivan Sokolov
Spænski leikurinn
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 b5 5. Bb3 g6
Sjaldséð leið en Ivan teflir spænska leikinn oft á afar persónulegan hátt.
6. a4 b4 7. d4 exd4 8. Bg5 Be7 9. Bf4 Bb7 10. O-O d6 11. Rxd4 Ra5 12. Bd5 c6 13. Ba2 Rf6 14. Rd2 O-O 15. R4b3 Rxb3 16. Bxb3 He8 17. He1 Bf8 18. Df3 d5?
Hann hefði betur leikið þessu einum leik fyrr. Hvítur er fljótur að leppa riddarann.
19. Bg5 Be7 20. exd5 Rxd5 21. Hxe7! Hxe7 22. Re4!
Leppun hróksins á e7 er óþægileg, m.a. vegna veikleikanna á svörtu reitunum. Hér er þvingað að leika 22. … Dc7 og þó að hvítur geti unnið peð með 23. Bxd5 cxd5 24. Rf6+ Kg7 25. Rxd5 Bxd5 26. Df6+ Kg8 27. Dxe7 Dxe7 28. Bxe7 á svartur jafnteflismöguleika eftir 28. … b3. En svartur sættir sig ekki við þetta og opnar nú á leppun riddarans á d5.
22. … f5?? 23. Rf6+ Kh8 24. Rxd5 cxd5 25. Bf6+!
Hárbeittur lokahnykkur. Eftir 25. … Kg8 kemur 26. Bxe7 Dxe7 27. Bxd5+ og svartur tapar manni eða hrók.
Óvænt úrslit á sænska meistaramótinu
Svíinn með finnska nafnið, Hans Tikkanen, varð sænskur meistari á dögunum eftir harða keppni við langstigahæsta keppandann, Nils Grandelius, sem varð í 2.-3. sæti ásamt öðrum þekktum stórmeistara og þeim næststigahæsta, Tiger Hillarp Persson. Þeir hlutu báðir 6 vinninga og þessir þrír skáru sig frá öðrum keppendum sem voru tíu í efsta flokki.
Tiger Hillarp var jafn Tikkanen í efsta sæti fyrir lokaumferðina og fékk það verkefni að tefla við Nils Grandelius. Í flóknu miðtafli lét hann bjartsýnina ráða för en Grandelius sá við öllum hans brellum og vann. Á sama tíma vann Tikkanen öruggan sigur á neðsta manni mótsins.
Skákþættir Helga Ólafssonar í Morgunblaðinu birtast viku síðar á Skák.is. Þessi skákþáttur birtist 14. júlí 2018.


















