Íslensku liðin áttu vægast sagt afleitan dag á Ólympíuskákmótinu í Batumi í dag. Mögulega er þetta versta umferð sem Ísland hefur átt í sögunni! Karlarnir í opna flokknum töpuðu 0-4 gegn Norðmönnum og gekk vægast sagt ekkert upp í viðureigninni.  Afleikirnir of margir og ef menn unnu sig inn í skákirnar léku þeir sig aftur úr þeim. Best að gleyma þessari viðureign og horfa fram á veginn.

Eina litla ljósið var í kvennaflokki þar sem Guðlaug Þorsteinsdóttir hélt áfram að tefla vel og náði góðu jafntefli á öðru borði gegn feykilega sterku liði Kúbverja. Aðrar skákir töpuðust og 0.5-3.5 tap staðreynd þar eins og í Tromsö 2014 gegn sömu sveit.

Íslensku liðin ættu að fá viðráðanlega andstæðinga á morgun til að komast aftur á flug inn í mótið.

 

Nánari umfjöllun um umferðina verður í pistli kvöldsins.

 

Beinar útsendingar á Skak.is: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Mótið á chess-results 4.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Myndapakki: Íslenskir skákmenn á Facebook

- Auglýsing -