Stórmeistarinn Helgi Ólafsson (2510) vann í gær enska alþjóðlega meistarann David Eggleston (2406) í áttundu og næstsíðustu umferð alþjóðlega mótsins á Mön. Helgi hefur hlotið 4½ vinning. Í lokaumferðinni sem hefst kl. 13 í dag teflir Helgi við indverska alþjóðlega meistarann Prithu Gupta (2458).

Dagur Ragnarsson (2251), Vignir Vatnar Stefánsson (2291) og Gauti Páll Jónsson (2073) unnu allir í gær en Aron Þór Mai (2063) tapaði.
Dagur hefur 3½ vinnning, Vignir hefur 3 vinninga, Gauti hefur 2 vinninga og Aron hefur 1½ vinning.
Upplýsingar um árangur íslensku keppendanna má finna á Chess-Results.
Í Major-flokknum vann Stephan Briem (2038) í sjöttu og næstsíðustu umferð í dag, Arnar Heiðarsson (1782) gerði jafntefli en Alexander Oliver Mai (1995) tapaði. Stephan er efstur í flokknum með 5 vinninga, Alexander hefur 3½ vinning og Arnar hefur 3 vinninga.














