Tómas Björnsson og Gauti Páll. Mynd: Facebook-síða Víkingaklúbbsins.

Jólamót Víkingaklúbbsins fór fram í gærkvöldi. Eins og síðustu ár var teflt bæði í skák og Víkingaskák, en þetta var níunda árið í röð sem mótið fer fram. Gauti Páll Jónsson sigraði í skákmótinu með 5.5 af sex mögulegum. Tómas Björnsson sigraði í Víkingaskákinni með 5 vinninga af sex, en náði svo að verða efstur í tvískákinni með hálfum vinningi meira en Gauti. Í Víkingaskákinni var Lenka Ptácníková efst kvenna og Gauti Páll fékk unglingaverðlaunin. Nánari úrslit verða birt á bloggsíðu félagsins.

Verðlaunahafar á Jólamóti Víkingaklúbbsins: Mynd: Facebook-síða Víkingaklúbbsins.
- Auglýsing -