Heimsmeistaramótið í atskák hófst í gær í Sankti Pétursborg. Magnús Carlsen stal athyglinni en hann tapaði í tveimur fyrstu umferðunum. Annars vegar fyrir úkraínska stórmeistaranum Adam Takhaev (2556) og hins vegar fyrir hinum unga Shamsiddin Vokhidov (2304), sem var einn heimsmeistara Úsbeka á Ólympíuskákmóti 16 ára og yngri. Þar reyndi hann heimaskítsmát. Carlsen vann síðustu þrjár skákirnar og er enn inni í baráttunni, 1½ vinningi á eftir efstu mönnum.

Þrír skákmenn eru efstir og jafnir með 4½ vinning. Þeirra á meðal er hinn íranski Alireza Firouzja (2412), sem er 16 ára og mikið efni. Verður meðal keppenda á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu. Jafnir honum í efsta sæti eru rússnesku stórmeistararnir Ian Nepomniachtchi (2771) og Dimitry Andreikin (2725).

Samhliða fer fram HM atskák í kvennaflokki. Þar er í forystu hin kínverska Ju Wenjun (2584) með 4 vinninga eftir 5 umferðir.
Dagur tvö fer fram í dag. Þá verða tefldar umferðir 6-10. Ýmsar leiðir eru til að fylgjast með mótinu. Mótið er sýnt beint á NRK1/NRK2, þar sem megináhersla er lögð á heimsmeistarann.
Heimasíða mótsins verður með beinar útsendingar á ensku. Chess24 er ávallt með afar vandaðar beinar útsendingar sem og Chess.com.
Nánar á Chess.com.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
- Chess-Results















