Dagur skákarinnar og Friðriks Ólafssonar, á laugardaginn kemur, afmælisdegi meistarans þann 26. janúar nk., verður að sjálfsögðu tekinn með fagnaði og trompi á Árdegismóti Skákdeildar KR, þar sem svo skemmtilega vill til að hann ber upp annan af tveimur tafldögum klúbbsins. Hið árlaga mótaröð af sama tilefni „Kappteflið um Friðrikskónginn“ hefst svo á mánudagskvöldið 28. janúar.

Fjöldi galvaskra skákgeggjara, eldhressra morgunhana á öllum aldri mæta jafnan til tafls í KR-heimilinu á  laugardagsmorgnum allan ársins hring til að hrista af sér slenið í vöntun annars betra og reyna með sér á hvítum reitum og svörtum.   Sumir hafa jafnvel stungið sér til sunds eða gengið upp að Steini áður en sest er að tafli. – Ársdegismótin hafa vaxið mjög að vinsældum sl. 4 -5 ár og eru nú oft á stundum orðin fjölsóttari en hin hefðbundu mánudagskvöldmót sem standa þó jafnan vel fyrir sínu allan ársins hring.

Enda þótt flestir keppendur séu fyrst og og fremst  mættir  „ til að tefla  sér til hugarhægðar en hvorki til lofs né frægðar“ er jafnan hart tekist á  enda vill enginn lenda í öðru sæti að óþörfu.

Stoltir sigurvegarar þessara móta undanfarið hafa m.a. verið þessir valinkunnu kappar:  Guðfinnur R. Kjartansson, Stefán Þormar Guðmundsson, Óskar Long Einarsson, Kristinn Bjarnason, Kristján Stefánsson, Þórarinn Sigurþórsson, Björn Ívarsson Scram og Ólafur Þórsson.

Mótin eru öllum opin og hefjast kl. 10.30.  Tefldar eru 9 umferðir – 7 mínúta hraðskákir.  Að þessu sinni verða veitt verðlaun og viðurkenningar í tilefni dagsins.   Það er jafnan heitt á könnunni og kruðerí meðan á tafli stendur.  Þátttökugjald er kr. 500 en aðeins minna fyrir fastagesti.

/ESE

Dagskrá Skákdagsins

- Auglýsing -