Rúnar er þarna ekki staddur í Vaglaskógi - heldur í Vegas. Mynd: Heimasíða Hugsins.

Rúnar Ísleifsson er efstur með fullt hús vinninga þegar aðeins tveim skákum er ólokið á Skákþingi Hugins á Húsavík. Rúnari nægir jafntefli gegn Hermanni Aðalsteinssyni í lokaumferðinni til að tryggja sér sigur í mótinu og meistartitil Hugins á Húsavík 2019 í leiðinni.

Hermann, sem á tvær skákir eftir gegn Ævari og Rúnari í lokaumferðinni, er sá eini sem getur náð Rúnari að vinningum vinni hann báðar skákirnar sem hann á eftir. Gangi það eftir verða þeir Rúnar og Hermann efstir og jafnir á mótinu og mun því stigaútreikningur skera úr um sigurvegarann. Ævar Ákason getur náð 4. sætinu vinni hann Hermann og Rúnar vinni Hermann í lokaumferðinni.

Staðan fyrir síðustu tvær skákirnar.

  1. Rúnar Ísleifsson               5 vinningar     (1 skák eftir)
  2. Kristján Ingi Smárason    4 vinningar
  3. Smári Sigurðsson            4 vinningar
  4. Hermann Aðalsteinsson   3 vinningar    (2 skákir eftir)
  5. Ævar Ákason                    2 vinningar
  6. Sigurbjörn Ásmundsson    1 vinningur
  7. Sigurður Danelsson          0 (tefldi ekki vegna veikinda)

Athygli vekur góður árangur Kristjáns Inga Smárasonar sem er einungis 10 ára gamall. Kristján hefur lokið sínum skákum og er sem stendur í 2. sæti með 4 vinninga. Kristján tapaði aðeins einni skák gegn Rúnari, gerði tvö jafntefli og vann tvær skákir í mótinu. Aðeins Hermann getur komið í veg fyrir að Kristján Ingi haldi verðlaunasætinu í mótinu. Útlit er fyrir að lokaskákirnar fari fram á heimavelli Rúnars að Vöglum í Fnjóskadal um helgina.

Eins og fram hefur komið hér á síðunni teflir Kristján Ingi fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótinu í skólaskák sem fram fer í Borgarnesi um helgina. Óhætt er að segja að afar forvitnilegt verði að fylgjast með gengi hans á mótinu.

Mótið á chess-results

Af heimasíðu Hugins.

- Auglýsing -