Íslandsmeistarar Álfhólsskóla 2018.

Íslandsmót barnaskólasveita, 4.-7. bekkur, fer fram laugardaginn 16. mars í Rimaskóla. Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2 mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Taflið hefst kl. 11 og gera má ráð fyrir að því ljúki um kl. 14.

Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 4.–7. bekk en þó er nemendum úr í 1.–3. bekk leyfilegt að tefla með en þá eingöngu í a-og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt að þrír varamenn.

Þátttökugjöld kr. 7.500.- á sveit. Þó ekki hærri en kr. 15.000.- fyrir hvern skóla.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verðunum fyrir efstu sveitir af landsbyggðinni.

Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði.

Sigurvegari mótsins hlýtur rétt til þátttöku á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fer í september næstkomandi í Svíþjóð.

Skráningu skal lokið í í síðasta lagi kl. 9 þann 15. mars. Ekki er hægt að skrá sveitir á skákstað.

- Auglýsing -