Minningarmót um Guðmund Arason var haldið á 100 ára fæðingardegi hans 17. mars sl. Guðmundur var fyrrum forseti SÍ og heiðursfélagi þess. Hann reyndist Skáksambandinu mikill velgjörðarmaður og lagði meðal annars persónulega út fyrir hluta útborgunar á kaupum á húsæði Skáksambandsins við fyrstu kaup þess. GA smíðajárn hefur ávallt studd vel við skákhreyfinguna og verður helsti styrktaraðili Íslandsmótsins á Akureyri (Icelandic Open) í maí-júní nk.

Gunnar Björnsson, forseti SÍ, bauð gesta og gagnandi velkomna og minntist Guðmundar í nokkrum orðum. Af því loknu tók Anna, dóttir hans, við og bauð gesti og gagnandi velkomna. Ari, sonur Guðmundar, lék svo fyrsta leikinn fyrir Stefán Bergsson gegn Hjörvari Steini Grétarssyni.
Teflt var heldur óvenjulegar aðstæður í birgðastöð fyrirtækisins í Móhellu 2 í Hafnarfirði. Teflt var í kringum stálbita! Fór vel um skákmennina 28 sem tók þátt í mótinu.

Keppendalistann samanstóð af flestum af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar, kempum frá Guðmundar Arasonar-mótunum í Hafnarfirði, sterkum skákkonum og ekki síst skákframtíðinni en Guðmundur var ávallt tíðrætt um mikilvægi öflugs æskulýðsstarfs. Sum ungmennin létu sig ekki um muna að halda svo skákhöllina í Faxafeninu til að tefla Unglingameistaramóti Reykjavíkur síðar sama dag.

Hjörvar Steinn (2691) var í banastuði á mótinu. Hann hlaut 6½ í umferðunum sjö. Leyfði aðeins jafntefli á móti Helga Ólafssyni (2517) í lokaumferðinni. Hann hækkar um 13 hraðskákstig og er kominn eftir 2700.
Jóhann Hjartarson (2533) varð annar með 6 vinninga. Í 3.-5. sæti með 5 vinninga urðu Bragi Þorfinnsson, Vignir Vatnar Stefánsson og Þröstur Þórhallsson. Bragi hlaut þriðja sætið eftir stigaútreikning.

Vignir hlaut unglingaverðlaun (u16) mótsins, Lenka Ptácníková fékk kvennaverðlaun og Bragi Halldórsson öldungaverðlaun (+65).
Úrslit mótsins má finna á Chess-Results.
Skáksambandið þegar GA Smíðajárni kærlega fyrir frábært samstarf við mótshaldið.














