Kristján Dagur og Anna Katarina. Mynd: Heimasíða TR

Unglingameistaramót Reykjavíkur sem og Stúlknameistaramót Reykjavíkur fór fram í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur í fyrradag, sunnudaginn 17. mars. Mótið var opið fyrir börn á grunnskólaaldri.

Þrenn verðlaun voru veitt fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum svo og aldursflokkaverðlaun í hvorum flokki fyrir sig, fyrir hvert ár frá 2003 til 2013. Þau sem eru búsett í Reykjavík eða eru félagar í reykvískum taflfélögum tefldu um titilinn Unglingameistari Reykjavíkur 2019 og Stúlknameistari Reykjavíkur 2019. Tefldar voru 7 umferðir með umhugsunartímanum 10+5. Mótið var reiknað til atskákstiga. Þátttakendur voru alls 38 og var mótið vel skipað.

Í Unglingameistaramótinu tefldu 27 krakkar og var keppnin mjög jöfn. Hart var barist, en allt með yfirveguðum hætti, enda margir reynsluboltar á meðal keppenda. Ljóst var að síðasta umferðin yrði afgerandi! Í lokaumferðinni unnust allar skákirnar á 6 efstu borðunum með hvítu! Á fyrsta borði tapaði efsti maður mótsins, Árni Ólafsson fyrir Ingvari Wu Skarphéðinssyni, sem þýddi að Kristján Dagur Jónsson tók fram úr Árna með sigri gegn Batel Goitom Haile. Kristján Dagur Jónsson er því Unglingameistari Reykjavíkur 2019. Benedikt Þórisson hreppti silfrið og Árni Ólafsson bronsið. Ingvar Wu varð í 4. sæti einnig, með 5,5, vinning.

Í Stúlknameistaramótinu tóku 9 stelpur þátt. Þar var einnig mjög hart barist og fyrir síðustu umferð var Anna Katarina Thoroddsen með 5 vinninga og síðan komu fjórar stúlkur með 4 vinninga. Anna Katarina vann sína skák í síðustu umferðinni og varð þar með ein efst í mótinu. Hún tapaði einungis fyrir hinni kornungu Emelíu Emblu B. Berglindardóttur, sem er fædd árið 2012! Anna Katarina Thoroddsen er því Stúlknameistari Reykjavíkur 2019. Í 2. sæti varð Soffía Arndís Berndsen með 5 vinninga og í 3. sæti varð Guðrún Fanney Briem, með 5 vinninga. Sara Sólveig Lis varð svo í 4. sæti, einnig með 5 vinninga.

Báðir titlarnir, Unglingameistari Reykjavíkur 2019 og Stúlknameistari Reykjavíkur 2019 fóru til Taflfélags Reykjavíkur.

Skákmótið fór mjög vel fram. Þarna voru krakkar með mikla keppnisreynslu og einnig einhverjir að stíga sín fyrstu skref á skákmóti. Þó nokkur fjöldi foreldra og systkina fylgdist með og skákmótið gekk samkvæmt tímaáætlun og allt með ró og spekt. Ýmislegt gekk á á reitunum 64 eins og við þekkjum! Allt fer þetta í reynslubankann góða – og verður notað á næsta skákmóti! Sjá heildarúrslit og aldursflokkaverðlaun hér að neðan.

Taflfélag Reykjavíkur þakkar öllum þátttakendum og aðstandendum fyrir skemmtilegt skákmót!

Heildarúrslit á Chess-Results

Aldursflokkaverðlaun í Unglingameistaramótinu:

  • 2005 – Kristján Dagur Jónsson
  • 2006 – Benedikt Þórisson
  • 2007 – Ingvar Wu Skarphéðinsson
  • 2008 – Einar Tryggvi Petersen
  • 2009 – Einar Dagur Brynjarsson
  • 2010 – Emil Kári Jónsson
  • 2011 – Svavar Óli Stefánsson
  • 2013 – Birkir Hallmundarson

Heildarúrslit í Stúlknameistaramótinu á Chess-Results.

Aldursflokkaverðlaun í Stúlknameistaramótinu:

  • 2007 – Sara Sólveig Lis
  • 2008 – Anna Katarina Thoroddsen
  • 2010 – Guðrún Fanney Briem
  • 2011 – Wihbet Goitom Haile
  • 2012 – Emilía Embla Baldvinsdóttir Berglindardóttir

Mótshaldari var Taflfélag Reykjavíkur. Skákstjórar voru Torfi Leósson og Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir. Birna Halldórsdóttir sá um veitingar á meðan mótinu stóð.

Pistill og myndir: Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir.

Af heimasíðu TR.

- Auglýsing -