Lykke-Merlot Helliesen (1601) – Soffía Arndís Berndsen (1031) 1-0
Anna Katarina Thoroddsen (1027) – Batel Goitom Haile (1582) 0-1
Karen Ólöf Gísladóttir () – Alva Ling Tran (1550) 0-1
Mathilde Bartels Fagan () – Freyja Birkisdóttir (1430) 0-1
Idunn Helgadóttir(1137) – Sarah Sima Derlich () 1-0
Mallie Stage-Steffensen () – Ásthildur Helgadóttir (1077) 0-1

Fjórir vinningar af sex mögulegum í hús í fyrstu umferð sem teljast verður viðunandi árangur.

Á fyrsta borði tefldi Soffía við stigahæsta keppanda flokksins. Soffía byrjaði vel og fékk ágætis stöðu úr byrjuninni en tefldi ónákvæmt í miðtaflinu sem kostaði að lokum 2 menn og því fór sem fór. Soffía á eftir að koma til baka í næstu umferðum því að hún getur sannarlega unnið hverja sem er í þessum flokki.

Á öðru borði telfdu Anna og Batel saman. Batel fékk mun betri stöðu eftir að Anna veikti sig á löngu skálínunni inn á a1 og vann skiptamun. Anna barðist vel áfram og vann skiptamun til baka og var Annna þá peði undir með heldur verri stöðu. Röng staðsetning á hrók hvíts í framhaldinu gerði Batel frekar auðvelt fyrir og vann hún að lokum nokkuð örugglega.

Karen tefldi við eina af stigahærri keppendum mótsins. Karen fann ekki rétt plan eftir byrjunina og lék af sér hrók sem sterkur andstæðingur hennar nýtti sér til sigurs. Karen er að tefla á sínu fyrsta norðurlandamóti og er reynslunni ríkari eftir þessa skák og á örugglega eftir að fá nokkra vinninga.

Freyja tefldi við eina af stigalausu dönsku stelpunum sem reyndist vera leikur kattarins að músinni. Sú danska er greinilega að tefla á sýnu fyrsta móti og vafðist það töluvert fyrir henni að skrifa niður leikina sem truflaði hana greinilega. Freyja vann því mjög auðveldan sigur í dag.

Iðunn tefldi við hina dönsku Söru og vann góðan sigur. Iðunn þarf að vara sig á því gegn sterkari andstæðingum en þessari stelpu að klára liðskipan áður en hún lætur til sverfa til stáls. Engu að síður góður sigur þar sem Iðunn var klárlega mun betri en stelpan sem hún telfdi við.

Ásthildur tefldi gengn Mallie frá Danmörku. Eftir skrítna byrjun sem Ásthildur ætlar ekki að endurtaka vann hún öruggan sigur eftir að hafa platað mann og síðan skiptamun til viðbótar af andstæðingnum.

Semsagt ágætis dagur í dag og vonandi enn betri dagur á morgun.

Íslensku stelpurnar
- Auglýsing -