Hannes Hlífar að tafli í Budějovice. Mynd: Heimasíða mótsins.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2561) byrjaði ekki vel á lokuðu skákmóti í Budjevoice í Tékklandi og tapaði tveim fyrstu skákunum. Í þriðju umferð, sem fram fór í gær, vann Hannes hins vegar góðan sigur á tékkenska alþjóðlega meistaranum Tomas Kraus (2479).  Hann er vonandi kominn á beinu brautina!

Fjórða fram fram í dag og hefst kl. 14. Þá teflir Hannes við Indverjann Bala Chandra Prasad Dhulipalla (2419).

Tíu skákmenn tefla í flokknum og þar af 3 stórmeistarar. Meðalstigin er 2450. Hannes stigahæstur keppenda.

- Auglýsing -