
Það gekk á ýmsu í sjöttu umferð Grand Chess Tour sem fram fór í gær í Zagreb í Króatíu. Fimm skákum af sex lauk með hreinum úrslitum. Heimsmeistarinn, Magnús Carlsen (2875), vann Nakamura (2754) eins og svo oft áður. Ding Liren (2805) lagði Ian Nepomniachtchi (2775) að velli.

Magnús er efstur með 5 vinninga ásamt Nepo og Wesley So (2754) sem hafði sigur á Mamedyarov (2774).

Ítarlega umfjöllun má finna á Chess.com.
Sjöunda umferð fer fram á morgun. Þá mætast Nepo og Carlsen.
- Auglýsing -















