Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2561) vann sína fjórðu sigurskák í röð í alþjóðlega mótinu í Budejovice í gær þegar sjötta umferð fór fram. Fórnarlamb gærdagsins var tékkneski alþjóðlegi meistarinn Jakub Szotkowski (2378). Hannes er í 1.-2. sæti með fjóra vinninga. Þetta má kalla frábæra endurkomu eftir töp í fyrstu tveim umferðunum.
Sjöunda umferð fer fram í dag. Þá teflir Hannes við tékkneska FIDE-meistarann Jan Miesbauer (2411).
Tíu skákmenn tefla í flokknum og þar af 3 stórmeistarar. Meðalstigin er 2450. Hannes er stigahæstur keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast almennt kl. 14)
- Auglýsing -















