Vignir að tafli í Carrickdale. Mynd: GB

FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2293) hefur 2½ vinning eftir 3 skákir á Glorney Gilbert mótinu í Carrickdale á Írlandi. Í síðustu tveim skákum hefur hann unnið Kanyamarla-systkinin ef ritstjóri skilur hlutina rétt en úrslitin eru ekki komin á Chess-Results.

Um er að ræða „túrbó-mót“. Níu umferðir tefldar á 5 dögum.

Meðalstig flokksins eru 2170 skákstig. Vignir er fjórði stigahæsti keppandi mótsins

- Auglýsing -