Meistaramót Hugins 2019 verður haldið á Húsavík helgina 22.-24. nóvember nk. Meistaramót Hugins verður núna haldið í fyrsta sinn á Húsavík og verður það sameinað Framsýnarmótinu. Mótið fer fram í Framsýnarsalnum að Garðarsbraut 26 á Húsavík.
Mótið er helgarmóti og tefldar verða fjórar umferðir með 25 mín umhugsunartíma á mann og síðan þrjár umferðir með 90mín +30/sek á leik.
Mótið verður opið öllum áhugasömum en aðeins félagsmaður í Huginn getur orðið skákmeistari Hugins 2019. Stefnt er að því að vera með vegleg verðlaun fyrir efstu sætin í mótinu.
Allar nánari upplýsingar um mótið verða birtar þegar þær liggja fyrir.
- Auglýsing -
















