Fimm skákmenn eru efstir og jafnir á alþjóðlega ofurskákmótinu á Mön sem nú er í gangi. Sigurvegari mótsins (eða sá efsti á eftir Carlsen og/eða Caruana) fær keppnisrétt á áskorendamótinu næsta vor.
Þeir sem hafa fullt hús hafa allir teflt á Reykjavíkurskákmótinu. Það er Indverjinn Adhiban (2639), Caruana (2812), Wang Hao (2726), Xiangzhi Bu (2721) og Alexei Shirov (2664).
Heimsmeistarinn Magnús Carlsen (2876) gerði jafntefli við Rússann Alexey Sarana (2657) og er meðal þeirra sem hafa 1½ vinning. Hann mætir, einum aðstoðarmanna Caruana, Rustam Kasimdzhanov (2657) í dag.
Sjá nánar á Chess.com.
Mótið er hrikalega sterkt. Af 154 keppendum eru 132 stórmeistarar.
- Auglýsing -

















