Ofurskákmót þar sem teflt er með svissneska kerfinu hófst á Mön í gær. Sigurvegari mótsins fær keppnisrétt á áskorendamótinu. Það gildir þó ekki um tvo keppendur þá Magnús Carlsen (2876) og Fabiano Caruana (2812). Sá fyrrnefndi er heimsmeistari og sá síðarnefndi hefur keppnisrétt sem áskorandinn í fyrra. Báðir unnu þeir sínar skákir. Heimsmeistarinn lenti þó í erfiðleikum gegn Yuriy Kuzubov (2636), fyrrverandi liðsmanni Taflfélags Bolungarvíkur. Heimsmeistarinn tókst snúa skákinni sér í vil í tímarhraki Úkraínumannsins.
Tölvuert var um óvænt úrslit. Hæst bar til tíðinda að Vishy Anand laut í dúk gegn Evgeniy Najer (2635).
Sjá nánar á Chess.com.
Mótið er hrikalega sterkt. Af 154 keppendum eru 132 stórmeistarar.
- Auglýsing -


















